Fara á efnissvæði
Hreyfispilið
Veldu útgáfu
Yngsta stig
Miðstig
Skólaíþróttir

Hreyfispilið

Með spilinu fylgja 15 æfingaspjöld og stuttar kennsluleiðbeiningar þar sem hver æfing er útskýrð á einfaldan hátt. Mælt er með að spjöldin séu prentuð út og æfingar kynntar áður en spilið er spilað, og þau má einnig hengja upp í kennslustofu til stuðnings, sérstaklega fyrir yngri nemendur. Spjöldin nýtast líka vel til að brjóta upp kennslustundir eða daginn.
Spilaborðin eru í tveimur stærðum. A3-útgáfan er prentuð á báðar hliðar, önnur með fjölda endurtekninga og hin án talna til að aðlaga verkefnin með uppleysanlegu tússi. A2-útgáfan er ætluð yngstu nemendum og er prentuð á aðra hlið, hentug til að festa á gólf.

Höfundur

Hildur Karen Aðalsteinsdóttir

Skólastig

Yngsta stig Miðstig

Vörunúmer

8707

Útgáfuár

2015