Fara á efnissvæði
Halló heimur 4
Veldu útgáfu
Yngsta stig
Samfélagsgreinar

Halló heimur 4

Halló heimur 4 kennsluleiðbeiningar fylgja námsefninu Halló heimur 4 sem er kjarnaefni í samfélags- og náttúrugreinum fyrir yngsta stig grunnskóla.  Þeim er skipt upp í 9 kafla líkt og nemendabókinni og fylgja þær bókinni opnu fyrir opnu. Í kennsluleiðbeiningum eru:

• upplýsingar um tengingu námsefnisins við hæfniviðmið og lykilhæfni aðalnámskrár, grunnþætti menntunar og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

• markmið kaflans, hugmyndir að kveikju og umræðupunktum með opnumynd kaflans

• fróðleikur um efni hvers kafla, áhugaverða tengla og útskýringar á hugtökum kaflans

• greinargóðar útfærslur af verkefnum sem hentugt er að vinna í tengslum við efni kaflans

• málshættir, orðatiltæki og söngtextar sem tengjast efni kaflans

• lýsingar á verkefnum í verkefnabók og markmið þeirra

Kennsluleiðbeinigar eru ekki fullfrágengnar og í vinnslu ennþá

Höfundar

Jónella Sigurjónsdóttir, Unnur María Sólmundsdóttir, Bergrún Íris Sævarsdóttir

Skólastig

Yngsta stig

Vörunúmer

2820

Útgáfuár

2026