Miðstig
Unglingastig
Samfélagsgreinar
Fjallkonan
Fræðslumynd þar sem sögð er saga óvenjulegs fornleifafundar við Vestdalsvatn ofan Seyðisfjarðar þar sem líkamsleifar konu frá 10. öld komu í ljós. Hjá henni mátti finna 600 perlur og fimm stóra og heillega skartgripi. Í myndinni er fjallað um þennan merka fund og rannsóknir fornleifafræðinga á svæðinu. Fundurinn reyndist einstakur. Aldrei áður hafa leifar svo skartklæddrar konu frá víkingaöld fundist á víðavangi. Hver var þessi kona? Hvert var hún að fara og af hverju var hún ein á ferð á fjöllum? Reynt er að svara þessum spurningum í myndinni. Þá er fundurinn settur í samhengi við sambærilegan fund í Noregi.
Skólastig
Miðstig Unglingastig
Vörunúmer
45154
Útgáfuár
2013