Unglingastig
Textílmennt
Fatahönnun fyrir grunnskóla
Um er að ræða verkefni tengd fatahönnun m.a. verkefni, lýsingar á vinnuferli og ýmiss konar fróðleik um fatahönnun. Lýst er í grófum dráttum hvernig fatahönnuður vinnur og út frá hvaða forsendum. Nemendur fá innsýn í það hvernig hönnuður undirbýr sig, hvað hann þarf að gera og hvernig. Vinnuferlið er svo útskýrt nánar með því að fylgjast með verki frá hugmynd til afurðar.Í efninu má að auki finna kafla um sögu tískunnar og um innlenda og erlenda fatahönnuði ásamt kennsluleiðbeiningum. Námsefni þetta er ætlað til að kynna og vekja áhuga grunnskólanemenda á þessari list- og starfsgrein.
Höfundar
Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir, Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir
Skólastig
Unglingastig
Vörunúmer
7486
Útgáfuár
2003