Samfélagsgreinar
Ég veit
„Ég veit“ er vefur fyrir leik- og grunnskóla um ofbeldi, misnotkun, einelti og réttindi barna. Efnið er þróað af Salaby í Noregi í samstarfi við sérfræðinga og staðfært fyrir íslenskan skólumhverfi samkvæmt aðalnámskrám. Miðlun efnisins á að fara fram af starfsfólki sem þekkir börnin vel og getur aðlagað fræðsluna að hópnum, útskýrt efnið og skapað öruggan ramma. Teiknimyndir, ljósmyndir og textar eru notaðir til að opna jákvæða og örugga leið að viðfangsefnunum. Í kynningu á hverju viðfangsefni er lögð áhersla á undirstöðuþekkingu um líkamann og tilfinningar, góð sambönd og rétt allra barna til að líða vel og vera örugg. Barna- og fjölskyldustofa mælir með að fræðslan í leikskólum fari fram með elstu börnum, en kennarar meta hvort efnið henti nemendahópnum þeirra.
Höfundur
Bufdir í Noregi
Þýðendur
Ástríður Einarsdóttir, Skopus þýðingastofa
Myndhöfundar
Bifrost ehf., Salaby
Upplesarar
Gunnar Erik, Hallgerður Erik, Ingvar Þór Björnsson, Sólveig Guðmundsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson
Skólastig
Yngsta stig Miðstig
Vörunúmer
2889
Útgáfuár
2024