Fara á efnissvæði

Nýr námsefnisvefur MMS er í þróun og við hvetjum notendur til að senda okkur ábendingar sem hjálpa okkur að bæta hann. Eldri námsefnisvef hefur verið lokað af öryggisástæðum.

Desemberdagatal 1 og 2
Veldu útgáfu
Íslenska

Desemberdagatal 1 og 2

Desemberdagatalið kemur úr smiðju Önnu Kristínar Arnarsdóttur og Svövu Þ. Hjaltalín sem báðar eru starfandi grunnskólakennarar. Verkefnin eru miðuð að nemendum í 1. og 2. bekk.
Markmið með dagatalinu er að bjóða kennurum og nemendum upp á fjölbreytni í skólastarfi. Höfundar lögðu upp með að hafa verkefnin fjölbreytt og flétta saman íslensku og stærðfræði ásamt  verklegri og skapandi vinnu.
Undir hverri dagsetningu eru tveir kaflar þ.e. VERKEFNI og KENNARINN.
Undir VERKEFNI er að finna útprentanleg verkefni fyrir nemendur. 
Undir KENNARINN er að finna markmið með verkefnunum, hugmynd að innlögn og leiðbeiningar um vinnu nemenda.

Höfundar

Anna Kristín Arnarsdóttir, Svava Þórhildur Hjaltalín

Skólastig

Yngsta stig

Vörunúmer

2804

Útgáfuár

2018