Hrekkjavaka er haldin 31. október og býður upp á fjölbreytt tækifæri til náms og sköpunar. Þemað býður upp á gott tilefni til að tengja hrekkjavöku við íslenskar þjóðsögur og þjóðtrú. Hvaða verur úr íslenskum sögum gætu átt heima í hrekkjavökusögu? Tröll, draugar, nykur, skoffín eða jafnvel huldufólk? Hvað er líkt og ólíkt íslenskri þjóðtrú og þeim verum sem við tengjum helst við hrekkjavöku?
Hrekkjavaka á sér langa sögu. Hluta rótanna má rekja til keltnesku hátíðarinnar Samhain, sem markaði lok sumars og upphaf vetrar. Síðar blönduðust slíkar hefðir kristnum siðum í kringum allraheilagramessu og allra sálna messu. Kvöldið fyrir allraheilagramessu nefndist All Hallows’ Eve og þaðan er heitið Halloween dregið.
Í dag tengja flest börn hrekkjavöku einkum við búninga, útskorin grasker, skraut og „gott eða grikk“. Hátíðin býður jafnframt upp á leik með spennu, dulúð og ímyndunarafl – allt frá fyndnum skrímslum og galdraverum yfir í drauga- og spennusögur.
Kræfir Krakkar | Yngsta stig
Í bókinn Skrímslið í skóginum lenda bekkjarfélagarnir, Ísold, Steina og Þór, í kapphlaupi við tímann. Geta þau bjargað vini sínum áður en hann breytist í skrímsli að eilífu?
Í bókinni Handan við brúna vill Ísold finna sér andstæðing í einvígi og leitar til nornarinnar Steinu. Það hefur óvæntar afleiðingar.
Vinirnir lenda síðan í dularfullu ævintýri í bókinni Ævintýri í djúpinu þegar leit að litlum kafbáti leiðir þau á óvæntar slóðir.
Sögurnar bjóða upp á umræðu um spennusögur, skrímsli, nornir og hvernig höfundar byggja upp óvissu og eftirvæntingu.
Galdraskólinn | Yngsta stig og Miðstig
Galdraskólinn er lestrarbók í flokknum Sestu og lestu. Katja fær óvænt boð um skólavist í galdraskóla en kemst fljótt að því að galdranámið er ekki alveg eins auðvelt og hún hélt. Bókin hentar vel sem kveikja að vinnu með galdra, þjóðtrú, lestrarskilning og skapandi skrif.
Bókin er ætluð nemendum á yngsta- og miðstigi sem hafa náð undirstöðuatriðum lestrar og henni fylgja verkefni. Aftast í bókinni eru einnig fróðleiksmolar sem tengjast galdratrú á Íslandi.
Varúð - hér býr ... | Miðstig
Next Up! 1 | Unglingastig
Efninu er ætlað að vekja unglinga til umhugsunar um umferð og umferðaröryggi. Fjallað er um umferðarmenningu, umferðarmerki, öryggisbúnað ökutækja, ábyrgð, akstursaðstæður og margt fleira. Fjölbreytt verkefni fylgja með sem gera ráð fyrir umræðum og margvíslegri úrvinnslu.
Það kom að norðan | Unglingastig
Baskerville hundurinn | Unglingastig
-
Nemendur semja stuttar drauga-, spennu- eða skrímslasögur og lesa þær upp eða taka upp sem hljóðsögur. Hægt er að vinna sérstaklega með upphaf, spennu, umhverfislýsingar og óvænt sögur.
-
Búið til ratleik með gátum, dulmáli og vísbendingum. Nemendur geta annaðhvort leyst ratleik kennarans eða hannað eigin ratleik fyrir annan hóp.
-
Nemendur teikna eða skapa eigin veru og ákveða nafn hennar, útlit, eiginleika, búsvæði og hvað hún óttast. Eldri nemendur geta skrifað þjóðsögu um uppruna hennar.
-
Nemendur velja veru úr íslenskum þjóðsögum og kynna hana með veggspjaldi, myndasögu eða stuttri sögu. Hvað myndi gerast ef nykur, draugur eða tröll mætti vampíru eða varúlfi?
-
Nemendur kanna uppruna hrekkjavöku og hvernig hátíðin hefur þróast. Einnig má bera hana saman við íslenska þjóðtrú og hefðir og ræða hvað er líkt og ólíkt.
-
Nemendur vinna með orðaforða sem tengist hrekkjavöku á ensku eða dönsku, til dæmis heiti á búningum, verum, skrauti og hefðum. Einnig má bera saman hvað sömu fyrirbæri kallast á mismunandi tungumálum.
-
Nemendur skoða hvernig hljóð, umhverfi og lýsingar geta skapað spennu í sögu. Hægt er að semja stutta sögu og bæta við hljóðum eða taka hana upp sem hljóðsögu. Sjá Hljóðleikhúsið.
-
Nemendur gera einfaldar tilraunir sem tengja má þemanu, til dæmis litabreytingar með rauðkáli eða freyðandi „nornaseyði“ með matarsóda og ediki.
-
Nemendur hanna búninga úr pappír, pappa, gömlum textíl eða öðru endurnýtanlegu efni. Áherslan er á hugmynd, hönnun og sköpun frekar en að kaupa tilbúinn búning.